03/02/2007

kaupmannahöfn í dag

gott er að hafa góða harmóníu í andlegum vitsmunum svo að logandi bílhræ, liggjandi á hvolfi á miðjum götunum, komi manni ekki úr jafnvægi. eða götubardagar. táragas...bál og brennur og fljúgandi kantsteinar...

02/18/2007

flugriðan og ég

sitthvað verður skrabblað hér um dásamlega stóraeplisför þegar jetlagginu slotar. annars er það bara að hella sér í þvottahúsfrumskóginn, vonandi verður sem minnst um norska eineltisgrísi þar, flugriðan mín og ég erum bara ekki að meika svoleiðis vesen í dag. ég held að flughræðslan mín sé annars í rénum, en ekki verður hið sama sagt um kreditkortaskuldir. en það er bara nokkuð fabulous á sinn hátt, held ég.

02/04/2007

af einelti í þvottahúsum

úff hvað ég er lasin. ef það er eitthvað slæmt við að vera aleinn í útlöndum, þá er það að vera lasin einn í útlöndum. að geta ekki einu sinni skroppið út eftir paracetamóli af kvölum hlýtur að vera lágpunkturinn.

alltaf hressandi líka að lenda í smá einelti í þvottahúsinu. tvær norskar bitrar (og afsakið) ógeðsömurlegaljótarogglataðar gellur réðust gegn mér einni, lasinni, hásri með úfið hár og rautt nef í joggingbuxum og lopapeysu, í bardaga yfir einum ómerkilegum þurrkara. ég viðurkenni það fúslega að ég, eins lasin og lítil í mér og ég var, fór hreinlega að brynna músum á leiðinni heim til mín í stíl við blauta þvottinn minn. þegar heim kom var ég reyndar fljót að hrista eymdarvolæðið af mér á tveimur mínútum, fór í buxur, skó, greiddi á mér hárið og setti meira segja á mig maskara, og út steig íslenskt ofurkvendi, tilbúið að ráða niðurlögum hvaða skandinavískrar drósar sem yrði í vegi fyrir mér og mínum þvotti. stórstikaði rakleiðis inn í þvottahús og henti mér af fullum krafti í þurrkarabardagann. en eins og flestir þeir sem á kollegíum búa vita að sunnudagar eru gósentíð í þvottabransanum. segiði svo að maður herðist ekki upp af því að búa hér.

annars fer ég til new york á morgun í special edition af sex and the city tour, skipulögðum að hluta til aldeilis spontant á staðnum af mér og mínum íðilfögru vinkonum, og þá sérstaklega af hinni íslensku carrie bradshaw, ungfrú önnu hrefnu eðalútibússtjóra nefjórksborgar. guð minn almáttugur hvað það verður stórkostlegt. að ég tali nú ekki um að komast sem lengst frá glötuðum noregsgellum, þvottahúsbardögum og öreigakollegíinu yfirleitt.

og svo eftir viku mun ég eflaust bæta við nokkrum færslum af gleðinni sem þar fór fram, ásamt því að hella mér útí bachelorgeðveiluna sem framundan er, að hætti hins íslenska ofurkvendis.

1 2 3 4 Next